{"id":3845,"date":"2022-01-10T15:14:00","date_gmt":"2022-01-10T15:14:00","guid":{"rendered":"https:\/\/elg.is\/?p=3845"},"modified":"2022-01-10T17:55:37","modified_gmt":"2022-01-10T17:55:37","slug":"dularfullu-daudsfollin-a-vatnsleysustrond","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/elg.is\/?p=3845","title":{"rendered":"Dularfullu dau\u00f0sf\u00f6llin \u00e1 Vatnsleysustr\u00f6nd"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"has-medium-font-size\">-s\u00f6gubrot og svipmyndir af Str\u00f6ndinni.<\/p>\n\n\n\n<p><strong>Vatnsleysustr\u00f6nd b\u00fdr yfir mikilli s\u00f6gu genginna kynsl\u00f3\u00f0a. Me\u00f0fram str\u00f6ndinni blasa hvarvetna vi\u00f0 minjar um \u00feessa s\u00f6gu; mannvirki, t\u00f3ftir, g\u00f6mul landb\u00fana\u00f0art\u00e6ki, sem standa eins og minnisvar\u00f0ar um li\u00f0na t\u00ed\u00f0 og fleira \u00far merkilegri bygg\u00f0as\u00f6gu \u00fear sem sj\u00f3s\u00f3kn og landb\u00fana\u00f0ur var lifibrau\u00f0 \u00edb\u00faa um aldir. Hver einasti b\u00f3ndi sveitarinnar var jafnframt \u00fatvegsma\u00f0ur og margt a\u00f0komuf\u00f3lk var \u00fear \u00e1 vert\u00ed\u00f0um. Strandarmenn voru framfarasinna\u00f0ir athafnamenn og brautry\u00f0jendur \u00e1 \u00fdmsan h\u00e1tt.&nbsp; Ekki \u00e6tla \u00e9g samt a\u00f0 gera \u00fatger\u00f0ar- og landb\u00fanars\u00f6gu Vatnsleysustrandar greinarg\u00f3\u00f0 skil \u00ed \u00feessum pistli heldur rifja upp undarleg atvik sem ur\u00f0u \u00e1 Str\u00f6ndinni um mi\u00f0ja 18. \u00f6ldina \u00fear sem fj\u00f6ldi manns hn\u00e9 ni\u00f0ur \u00f6rendur, fyrirvaralaust og \u00e1n \u00feess a\u00f0 h\u00e6gt v\u00e6ri a\u00f0 segja til um d\u00e1nar\u00f6rs\u00f6k. \u00cd \u00feann mund sem \u00feeir hnigu ni\u00f0ur r\u00e1ka \u00feeir upp mikil \u00f3hlj\u00f3\u00f0&nbsp; &#8211; n\u00e1hlj\u00f3\u00f0 e\u00f0a n\u00e1gaul eins og f\u00f3lk kalla\u00f0i \u00feau. Eins og v\u00e6nta m\u00e1tti, v\u00f6ktu \u00feessi dularfullu dau\u00f0sf\u00f6ll mikla skelfingu og n\u00e6rri l\u00e1 a\u00f0 f\u00f3lk fl\u00fd\u00f0i bygg\u00f0alagi\u00f0 af \u00feeim s\u00f6kum.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full is-style-default\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1080\" height=\"720\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns1.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3846\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns1.jpg 1080w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns1-300x200.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns1-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns1-768x512.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1080px) 100vw, 1080px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p style=\"font-size:18px\">R\u00e1ku skyndilega upp h\u00e1tt hlj\u00f3\u00f0 og d\u00f3u samstundis<\/p>\n\n\n\n<p>Um \u00feessa atbur\u00f0i er geti\u00f0 \u00ed hinni merku Fer\u00f0ab\u00f3k Eggerts og Bjarna en \u00fear er eftirfarandi fr\u00e1s\u00f6gn:<br \/>\u201eVeturinn 1753-54, b\u00e1\u00f0um megin h\u00e1t\u00ed\u00f0a, ur\u00f0u 3 e\u00f0a 4 menn br\u00e1\u00f0dau\u00f0ir \u00ed n\u00e1nd vi\u00f0 Landakot. Veturinn eftir d\u00f3u enn fleiri, og s\u00f6mulei\u00f0is n\u00e6sta vetur \u00fear \u00e1 eftir, unz alls voru d\u00e1nir 19 menn.<br \/>F\u00e1v\u00eds al\u00fe\u00fd\u00f0a \u00e1 \u00feeim sl\u00f3\u00f0um eigna\u00f0i \u00feetta \u00e1hrifum illra anda og er \u00fea\u00f0 ekki l\u00e1andi, \u00fear sem sl\u00edkt er \u00ed \u00f3samr\u00e6mi vi\u00f0 kenningar heilagrar ritningar, og s\u00e1 skilningur, sem menn hafa \u00e1 n\u00e1tt\u00farunni, gat ekki heldur brug\u00f0i\u00f0 neinu lj\u00f3si yfir atbur\u00f0ina. Var\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 svo skelft vi\u00f0 atbur\u00f0i \u00feessa, a\u00f0 n\u00e6rri l\u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 fl\u00fd\u00f0i bygg\u00f0alagi\u00f0. Menn tr\u00fa\u00f0u \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00feetta v\u00e6ri refsid\u00f3mur, sem gu\u00f0 hef\u00f0i leyft einhverjum illum anda a\u00f0 framkv\u00e6ma. A\u00f0 lokum l\u00e9tu menn \u00fe\u00f3 skipast vi\u00f0 fort\u00f6lur og bi\u00f0u \u00ed sveitinni enn eitt \u00e1r til reynslu en voru \u00fe\u00f3 skelfdir og \u00f3ttu\u00f0ust daglega br\u00e1\u00f0an dau\u00f0a. En \u00feann vetur d\u00f3 enginn, og ekki s\u00ed\u00f0an. Eigi eru heldur neinar sagnir af nokkrum sl\u00edkum manndau\u00f0a \u00fear nokkru sinni fyrr.<br \/>Menn \u00feeir, er l\u00e9tust, voru allir fullkomnlega heilbrig\u00f0ir og \u00e1 gangi er \u00feeir d\u00f3u. Var\u00f0 \u00fea\u00f0 me\u00f0 \u00feeim h\u00e6tti, a\u00f0 \u00feeir r\u00e1ku skyndilega upp h\u00e1tt hlj\u00f3\u00f0, og d\u00f3u samstundis. \u00d6ll \u00feessi br\u00e1\u00f0u dau\u00f0sf\u00f6ll bar a\u00f0 h\u00f6ndum stytztu og dimmustu daga \u00e1rsins, um vetars\u00f3lhv\u00f6rf, en \u00fe\u00f3 \u00e6t\u00ed\u00f0 a\u00f0 degi til. Flestir \u00feeir, er d\u00f3u svo skyndilega, voru skyldir, a\u00f0allega fj\u00f3rir br\u00e6\u00f0ur og b\u00f6rn \u00feeirra. Tveir \u00feessara br\u00e6\u00f0ra voru einu sinni saman \u00e1 gangi. \u00de\u00e1 var\u00f0 annar \u00feeirra allt \u00ed einu br\u00e1\u00f0kvaddur, en hinn kenndi s\u00e9r einskis meins. Allir \u00feeir, sem d\u00f3u, voru r\u00e1\u00f0vandir menn og h\u00e6gl\u00e1tir \u00ed framfer\u00f0i s\u00ednu, og hj\u00e1 \u00feeim haf\u00f0i ekki g\u00e6tt \u00feunglyndis n\u00e9 hugs\u00fdki.<br \/>Vi\u00f0 k\u00f6nnu\u00f0um sta\u00f0inn sumari\u00f0 1755 og s\u00e1um \u00fe\u00e1, a\u00f0 landi\u00f0 er mj\u00f6g hol\u00f3tt. Okkur var tj\u00e1\u00f0, a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri venjulega snj\u00f3laust, eins og t\u00edtt er \u00ed hraunum, og einnig a\u00f0 manndau\u00f0inn hef\u00f0i jafnt or\u00f0i\u00f0, hvort sem snj\u00f3r var \u00e1 j\u00f6r\u00f0 e\u00f0a ekki. J\u00f6r\u00f0 er h\u00e9r \u00f6ll brunnin me\u00f0 fj\u00f6lda af sprungum og gj\u00f3tum, og hug\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 eiturgufur mundi leggja \u00fear upp \u00far j\u00f6r\u00f0 og hef\u00f0i \u00fe\u00e6r reynzt \u00feessu sinni kraftmeiri en endran\u00e6r, af \u00fev\u00ed a\u00f0 allflest uppg\u00f6nguaugun hafi veri\u00f0 loku\u00f0 af \u00edsi og snj\u00f3\u201c.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full is-style-default\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1080\" height=\"590\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns2.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3847\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns2.jpg 1080w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns2-300x164.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns2-1024x559.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns2-768x420.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1080px) 100vw, 1080px\" \/><figcaption><em>Landakot \u00e1 Vatnsleysustr\u00f6nd var eitt af h\u00f6fu\u00f0b\u00f3lum Vatnsleysustrandarhrepps. \u00dea\u00f0an var margt merkisf\u00f3lk komi\u00f0, m.a. Margr\u00e9t Gu\u00f0nad\u00f3ttir, veirufr\u00e6\u00f0ingur og pr\u00f3fessor vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. Ranns\u00f3knir hennar skilu\u00f0u ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um sem v\u00f6ktu eftirtekt v\u00edsindasamf\u00e9lagsins \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0av\u00edsu og hlaut h\u00fan margar vi\u00f0urkenningar fyrir st\u00f6rf s\u00edn. Margr\u00e9t er amma t\u00f3nsk\u00e1ldsins Hildar Gu\u00f0nad\u00f3ttur<\/em>.<br \/>_____________________________________________________________________________________<br \/><\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p style=\"font-size:18px\">Banv\u00e6nt loft \u00far i\u00f0rum jar\u00f0ar e\u00f0a \u00f3\u00e6ti?<\/p>\n\n\n\n<p>\u00c1ri\u00f0 1961 kom \u00fat b\u00f3kin Str\u00f6nd og Vogar eftir \u00c1rna \u00d3la en \u00fear er a\u00f0 finna margv\u00edslegan fr\u00f3\u00f0leik \u00far s\u00f6gu Vatnsleysustrandar. \u00cd b\u00f3kinni getur hann um \u00feessi dularfullu dau\u00f0sf\u00f6ll og rifjar upp fr\u00e1s\u00f6gn Eggerts og Bjarna.&nbsp;Ekki segist \u00c1rni leggja neinn d\u00f3m \u00e1 \u00fea\u00f0, hvort s\u00fa tilg\u00e1ta s\u00e9r r\u00e9tt a\u00f0 manndau\u00f0inn hafi stafa\u00f0 af banv\u00e6nu lofti er streymt hafi upp \u00far hraungj\u00f3tum en \u00fdmislegt anna\u00f0 s\u00e9 einkennilegt vi\u00f0 \u00feessa fr\u00e1s\u00f6gn.<br \/> \u201e\u00cd ann\u00e1lum er \u00feess geti\u00f0, a\u00f0 9 menn hafi or\u00f0i\u00f0 br\u00e1\u00f0kvaddir \u00e1 Vatnsleysustr\u00f6nd \u00e1 \u00feessum \u00e1rum. Sennilega er s\u00fa tala of l\u00e1g, en r\u00e9ttari hin, sem stendur \u00ed Fer\u00f0ab\u00f3kinni og h\u00f6f\u00f0 er eftir m\u00f6nnum \u00fear \u00e1 sta\u00f0num, nema um misritun e\u00f0a pentvillu s\u00e9 a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. En hitt er rangt, a\u00f0 menn hafi ekki or\u00f0i\u00f0&nbsp; br\u00e1\u00f0dau\u00f0ir \u00fear \u00e1\u00f0ur. Samkv\u00e6mt ann\u00e1lum hafa 4 menn or\u00f0i\u00f0 br\u00e1\u00f0kvaddir \u00fear \u00e1ri\u00f0 1699, tveir \u00e1ri\u00f0 1700 og \u00e1ri\u00f0 1702 er sagt a\u00f0 30 menn hafi or\u00f0i\u00f0 br\u00e1\u00f0kvaddir \u00e1 Su\u00f0urnesjum og hafi sumir \u00feeirra eflaust veri\u00f0 \u00e1 Vatnsleysustr\u00f6nd\u201c, segir \u00c1rni \u00d3la me\u00f0al annars texta b\u00f3karinnar.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full is-style-default\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1920\" height=\"1218\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns5.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3848\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns5.jpg 1920w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns5-300x190.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns5-1024x650.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns5-768x487.jpg 768w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns5-1536x974.jpg 1536w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns5-80x50.jpg 80w\" sizes=\"(max-width: 1920px) 100vw, 1920px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<p><br \/>\u00c1rni getur \u00feess a\u00f0 \u00e1 \u00feessum \u00e1rum hafi veri\u00f0 hin mestu har\u00f0indi. Vetur voru har\u00f0ir, f\u00f3lk \u00e1 vergangi og margt d\u00f3 af hungri og hall\u00e6ri. Vitnar hann \u00ed ann\u00e1la&nbsp;sem greindu fr\u00e1 \u00feessum h\u00f6rmungum \u00ed hinu har\u00f0b\u00fdla landi: miklar \u00f3g\u00e6ftir, bjargr\u00e6\u00f0isbrestur st\u00f3r og f\u00f3lk reyndi a\u00f0 lifa \u00e1 \u00fev\u00ed sem hendi var n\u00e6st; fj\u00f6rugr\u00f6sum, \u00feangi og misj\u00f6fnu. Fundist hafi \u00feeir, sem \u00e1tu hesta, hunda og hrafna. Og \u00feegar ekki vildi betur til reyndi f\u00f3lk a\u00f0 halda \u00ed s\u00e9r l\u00edfi me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 leggja s\u00e9r til munns hey, skinn og steiktar sk\u00f3b\u00e6tur. \u00deetta n\u00f6turlega \u00e1stand hafi vara\u00f0 lengi og l\u00fdsir hann \u00ed textanum nokkrum har\u00f0inda\u00e1rum fram til \u00e1rsins 1754.  <br \/>\u201e\u00c1 \u00feessu m\u00e1 sj\u00e1 a\u00f0 \u00e1standi\u00f0 hefir upp \u00far mi\u00f0ri \u00f6ldinni veri\u00f0 svipa\u00f0 og \u00fea\u00f0 sem var um aldam\u00f3tin. M\u00e1 \u00fev\u00ed vera, a\u00f0 einhver \u00f3\u00e1tan, sem menn l\u00f6g\u00f0u s\u00e9r til munns hafi valdi\u00f0 \u00fev\u00ed, a\u00f0 \u00feeir ur\u00f0u br\u00e1\u00f0kvaddir,\u201c skrifar \u00c1rni. Nefnir hann \u00ed \u00fev\u00ed samhengi athyglisver\u00f0a fr\u00e1s\u00f6gn \u00ed Fitjaann\u00e1li fr\u00e1 \u00e1rinu 1699 um fj\u00f3ra menn sem ur\u00f0i br\u00e1\u00f0kvaddir \u00ed Tr\u00e9kyllisv\u00edk. \u00cd \u00feeirri sveit hafi menn oft or\u00f0i\u00f0 br\u00e1\u00f0kvaddir. \u201eEn \u00e1\u00f0ur en einhver var\u00f0 br\u00e1\u00f0kvaddur, heyr\u00f0ist \u00f3gnarlegt hlj\u00f3\u00f0, svo fj\u00f6llin t\u00f3ku eftir, og k\u00f6llu\u00f0u \u00feeir \u00fea\u00f0 n\u00e1hlj\u00f3\u00f0 e\u00f0a n\u00e1gaul.<br \/>N\u00fa er \u00feess geti\u00f0 \u00ed Fer\u00f0ab\u00f3kinni, a\u00f0 allir \u00feeir, sem ur\u00f0i br\u00e1\u00f0kvaddir \u00e1 Vatnsleysustr\u00f6nd, hafi reki\u00f0 upp h\u00e1tt hlj\u00f3\u00f0 \u00e1\u00f0ur en \u00feeir hnigu ni\u00f0ur. H\u00e9r er s\u00fdnilega um n\u00e1kv\u00e6mlega sams konar fyrirbrig\u00f0i a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. \u00cd Tr\u00e9kyllisv\u00edk hrundi f\u00f3lk ni\u00f0ur \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt um langt skei\u00f0, og var af sumum kennt, a\u00f0 \u00feeir hef\u00f0i eti\u00f0 n\u00fdjan h\u00e1karl. Ekkert er geti\u00f0 um h\u00e1karls\u00e1t \u00e1 Vatnsleysustr\u00f6nd, en \u00fe\u00f3 eru heimildir fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00e6ndur \u00fear hafi veitt h\u00e1karl\u201c, segir \u00c1rni a\u00f0 endingu.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full is-style-default\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1290\" height=\"688\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns3.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3850\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns3.jpg 1290w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns3-300x160.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns3-1024x546.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns3-768x410.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1290px) 100vw, 1290px\" \/><figcaption><em>Undir Stapanum m\u00e1 sj\u00e1 minjar ver\u00f0st\u00f6\u00f0varinnar H\u00f3lmab\u00fa\u00f0a. Var \u00fear bl\u00f3mleg \u00fatger\u00f0 um mi\u00f0ja 19. \u00f6ldina. Einnig m\u00e1 sj\u00e1 \u00fear t\u00f3ftir b\u00e6janna sem st\u00f3\u00f0u undir Stapanum. N\u00e1nar er fjall\u00f0 um s\u00f6gu <a href=\"https:\/\/elg.is\/?p=2558\" target=\"_blank\" rel=\"noreferrer noopener\">H\u00f3lmab\u00fa\u00f0a \u00ed annarri grein h\u00e9<\/a>r \u00e1 vefnum.<\/em><\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full is-style-default\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1290\" height=\"668\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns4.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3851\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns4.jpg 1290w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns4-300x155.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns4-1024x530.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns4-768x398.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1290px) 100vw, 1290px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full is-style-default\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1080\" height=\"607\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns6.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3852\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns6.jpg 1080w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns6-300x169.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns6-1024x576.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns6-768x432.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1080px) 100vw, 1080px\" \/><figcaption><em>Atlager\u00f0istangi og vitinn sem vi\u00f0 hann er kenndur<\/em>.<br \/>____________________________________________________<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full is-style-default\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1080\" height=\"580\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns8.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3854\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns8.jpg 1080w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns8-300x161.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns8-1024x550.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns8-768x412.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1080px) 100vw, 1080px\" \/><figcaption><em>Horft yfir str\u00f6nd Brunnasta\u00f0ahverfis. A\u00f0grunnt er \u00e1 \u00feessum sl\u00f3\u00f0um og a\u00f0st\u00e6\u00f0ur g\u00f3\u00f0ar fyrir varir og lendingar fyrri t\u00ed\u00f0ar sj\u00f3s\u00f3knar.<\/em><br \/>_________________________________________________________________<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large is-style-default\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"575\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns9-1024x575.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3855\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns9-1024x575.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns9-300x168.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns9-768x431.jpg 768w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns9.jpg 1290w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><figcaption><em>Horft yfir Stapann \u00ed \u00e1tt til Voga. Undan Stapanum voru l\u00f6ngum g\u00f3\u00f0 fiskimi\u00f0.<\/em><br \/>________________________________________________________________<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large is-style-default\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"683\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns11-1024x683.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3856\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns11-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns11-300x200.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns11-768x512.jpg 768w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns11.jpg 1290w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><figcaption><em>Grunnur vindmylluh\u00fass \u00ed Au\u00f0nalandi. Athafnama\u00f0urinn Stef\u00e1n Sigurfinnson \u00e1 Au\u00f0num stofna\u00f0i samt\u00f6k me\u00f0al hreppsb\u00faa um byggingu vindmyllunnar 1918-19. \u00c1tti h\u00fan a\u00f0 mala \u00feurrku\u00f0 bein \u00far sj\u00e1varafur\u00f0um til skepnuf\u00f3\u00f0urs. Rekstur beinamyllunnar gekk ekki eins og vonast var eftir, bilanir voru all t\u00ed\u00f0ar og vi\u00f0hald d\u00fdrt auk \u00feess sem h\u00fan mala\u00f0i of gr\u00f3ft. Var h\u00fan \u00fev\u00ed afl\u00f6g\u00f0 a\u00f0eins tveimur e\u00f0a \u00feremur \u00e1rum eftir a\u00f0 h\u00fan var reist. En h\u00fas hennar stendur enn sem vitnisbur\u00f0ur um st\u00f3rhuga athafnaf\u00f3lk Strandarinnar. Ke\u00f0jurnar sem h\u00e9ldu myllusp\u00f6\u00f0unum hanga \u00fear enn\u00fe\u00e1.<\/em><br \/>______________________________________________________________<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large is-style-default\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1024\" height=\"683\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns12-1024x683.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3857\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns12-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns12-300x200.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns12-768x512.jpg 768w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns12.jpg 1290w\" sizes=\"(max-width: 1024px) 100vw, 1024px\" \/><figcaption><em>K\u00e1lfatjarnarkirkja. N\u00faverandi kirkja var v\u00edg\u00f0 \u00ed j\u00fan\u00ed 1893 en kirkja hefur l\u00edklega veri\u00f0 \u00e1 K\u00e1lfatj\u00f6rn fr\u00e1 upphafi bygg\u00f0ar. Hennar er geti\u00f0 \u00ed kirknatali P\u00e1ls biskups fr\u00e1 1200 og var h\u00fan P\u00e9turskirkja \u00ed ka\u00fe\u00f3lskri t\u00ed\u00f0. K\u00e1lfatjanarkirkja \u00feykir sannk\u00f6llu\u00f0 v\u00f6lundarsm\u00ed\u00f0 og er h\u00fan fri\u00f0u\u00f0.<\/em><br \/>______________________________________________________________<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full is-style-default\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1080\" height=\"607\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns12b.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3858\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns12b.jpg 1080w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns12b-300x169.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns12b-1024x576.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns12b-768x432.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1080px) 100vw, 1080px\" \/><figcaption><em>Horft yfir str\u00f6ndina a\u00f0 K\u00e1lfatj\u00f6rn. Keilir og Reykjanesskagafj\u00f6ll \u00ed fjarska.<\/em><br \/>______________________________________________________<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-large is-style-default\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"683\" height=\"1024\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns14-683x1024.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3860\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns14-683x1024.jpg 683w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns14-200x300.jpg 200w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns14.jpg 700w\" sizes=\"(max-width: 683px) 100vw, 683px\" \/><figcaption><em>Me\u00f0fram str\u00f6ndum Vatnsleysustrandar m\u00e1 hvarvetna sj\u00e1 minjar um sj\u00f3s\u00f3kn fyrri t\u00ed\u00f0ar.<\/em><br \/>____________________________________________________________<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p><em>Upphaflega birt 21. okt\u00f3ber 2021.<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>-s\u00f6gubrot og svipmyndir af Str\u00f6ndinni. Vatnsleysustr\u00f6nd b\u00fdr yfir mikilli s\u00f6gu genginna kynsl\u00f3\u00f0a. Me\u00f0fram str\u00f6ndinni blasa hvarvetna vi\u00f0 minjar um \u00feessa s\u00f6gu; mannvirki, t\u00f3ftir, g\u00f6mul landb\u00fana\u00f0art\u00e6ki, sem standa eins og minnisvar\u00f0ar um li\u00f0na t\u00ed\u00f0 og fleira \u00far merkilegri bygg\u00f0as\u00f6gu \u00fear sem &hellip; <a href=\"https:\/\/elg.is\/?p=3845\">Continued<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":3846,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"kt_blocks_editor_width":"","jetpack_post_was_ever_published":false,"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_publicize_message":"","jetpack_publicize_feature_enabled":true,"jetpack_social_post_already_shared":true,"jetpack_social_options":{"image_generator_settings":{"template":"highway","enabled":false},"version":2}},"categories":[136],"tags":[262,264,263,133,261,260,130,111,259,134,110],"jetpack_publicize_connections":[],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2021\/10\/Vatns1.jpg","jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_shortlink":"https:\/\/wp.me\/p9GOIz-101","jetpack_likes_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3845"}],"collection":[{"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3845"}],"version-history":[{"count":10,"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3845\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3896,"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3845\/revisions\/3896"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/media\/3846"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3845"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3845"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3845"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}