{"id":3912,"date":"2022-02-17T20:08:36","date_gmt":"2022-02-17T20:08:36","guid":{"rendered":"https:\/\/elg.is\/?p=3912"},"modified":"2022-02-20T11:33:19","modified_gmt":"2022-02-20T11:33:19","slug":"kerlingarfjoll-storbrotid-landslag-mikilla-andstaedna","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/elg.is\/?p=3912","title":{"rendered":"Kerlingarfj\u00f6ll \u2013 st\u00f3rbroti\u00f0 landslag mikilla andst\u00e6\u00f0na"},"content":{"rendered":"\n<p><strong>\u00c1 Kili er eitthva\u00f0 sei\u00f0magn sem dregur mann \u00feanga\u00f0 aftur og aftur. Kjalvegur er kannski ekkert skemmtilegur yfirfer\u00f0ar, allavega \u00e1 k\u00f6flum, en b\u00fdr yfir \u00e1kve\u00f0num sjarma og andbl\u00e6 \u00f3bygg\u00f0anna sem alls ekki \u00e6tti a\u00f0 ey\u00f0ileggja me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gera hann a\u00f0 uppbygg\u00f0um heils\u00e1rsvegi, eins og r\u00e6tt hefur veri\u00f0 um. \u00dea\u00f0 v\u00e6ri st\u00f3rslys af mannav\u00f6ldum.&nbsp; Um Kjalveg liggur lei\u00f0in a\u00f0 \u00fdmsum heillandi n\u00e1tt\u00faruperlum h\u00e1lendisins eins og Hv\u00edt\u00e1rnesi, Hverav\u00f6llum, Jarlhettum og Kerlingarfj\u00f6llum \u00ed kynngim\u00f6gnu\u00f0u landslagi umgirtu &nbsp;tignarlegum \u00edshettum Langj\u00f6kuls og Hofsj\u00f6kuls.&nbsp; \u00cd \u00feessum pistli er fjalla\u00f0 um \u00fe\u00e1 s\u00ed\u00f0astnefndu \u00ed m\u00e1li og myndum. Kerlingarfj\u00f6ll eru st\u00f3rbrotin me\u00f0 \u00f6llum s\u00ednum tindum, gn\u00edpum, eggjum, r\u00f6\u00f0lum og litad\u00fdr\u00f0 sem gerir landslag sv\u00e6\u00f0isins svo einstaklega fj\u00f6lbreytt a\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00e1 s\u00e9r f\u00e1ar e\u00f0a engar hli\u00f0st\u00e6\u00f0ur.<\/strong><\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1290\" height=\"860\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7760.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3913\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7760.jpg 1290w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7760-300x200.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7760-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7760-768x512.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1290px) 100vw, 1290px\" \/><figcaption><em>Heitt og kalt. Andst\u00e6\u00f0ur \u00ed Kerlingarfj\u00f6llum eru miklar \u00fear sem sj\u00f3\u00f0heit hverasv\u00e6\u00f0i og \u00edskaldur j\u00f6kul\u00eds kallast \u00e1.<\/em><br \/>__________________________________________<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"has-medium-font-size\">Endalaus uppspretta myndefnis<\/p>\n\n\n\n<p>Kerlingarfj\u00f6ll voru lengi \u00f3k\u00f6nnu\u00f0 og f\u00e1ir l\u00f6g\u00f0u lei\u00f0 s\u00edna \u00feanga\u00f0. Gagnamenn f\u00f3ru ekki um \u00feau fyrr en eftir mi\u00f0ja 19.\u00f6ld. \u00deau voru \u00fev\u00ed lengi vel sveipu\u00f0 dul\u00fa\u00f0 sem kynnti undir s\u00f6gusagnir um \u00fatilegumannabygg\u00f0ir \u00ed fj\u00f6llunum.\u00a0 \u00c1ri\u00f0 1938 var fyrst \u00a0fari\u00f0 \u00e1 b\u00edl yfir Kj\u00f6l og \u00fea\u00f0 er ekki fyrr en 1941 sem Kerlingarfj\u00f6ll voru k\u00f6nnu\u00f0 til hl\u00edtar af Fer\u00f0af\u00e9lagi \u00cdslands.<br \/>Kerlingarfj\u00f6ll hafa um \u00e1rabil noti\u00f0 vins\u00e6lda sem \u00fativistarsv\u00e6\u00f0i enda \u00e1 allan h\u00e1tt firnaskemmtilegt g\u00f6nguland me\u00f0 \u00f3tal m\u00f6guleika til styttri sem lengri g\u00f6ngufer\u00f0a eftir hentugleik hvers og eins. Margir eiga g\u00f3\u00f0ar minningar fr\u00e1 \u00feeim \u00e1rum \u00feegar sk\u00ed\u00f0ask\u00f3li var rekinn \u00ed Kerlingarfj\u00f6llum\u00a0en vegna hl\u00fdnandi loftlags hefur sk\u00ed\u00f0ai\u00f0kun \u00fear lagst ni\u00f0ur.<br \/>Fyrir lj\u00f3smyndara eru Kerlingarfj\u00f6ll endalaus uppspretta myndefnis \u00ed landslagi mikilla andst\u00e6\u00f0na \u00fear sem sj\u00f3\u00f0heit hverasv\u00e6\u00f0i og \u00edskaldar j\u00f6kulfannir kallast \u00e1. Ummerki \u00edss og elds eru \u00f3v\u00ed\u00f0a jafn \u00e1\u00fereifanleg og \u00fearna.\u00a0 Litad\u00fdr\u00f0 sv\u00e6\u00f0isins skemmir heldur ekki fyrir og allt \u00feetta samspil gerir sv\u00e6\u00f0i\u00f0 a\u00f0 myndr\u00e6nu veisluhla\u00f0bor\u00f0i fyrir auga lj\u00f3smyndarans. \u00dearna er h\u00e6gt a\u00f0 a\u00f0 vera d\u00f6gum saman vi\u00f0 a\u00f0 lj\u00f3smynda einstaklega fallega og st\u00f3rbrotna n\u00e1tt\u00faru og af n\u00f3gu er a\u00f0 taka.<br \/>Kerlingafj\u00f6ll setja mikinn svip \u00e1 landi\u00f0 \u00feegar eki\u00f0 er yfir Kj\u00f6l \u00fear sem \u00feau r\u00edsa h\u00e1tt \u00ed sl\u00e9ttlendri\u00a0og mikilli v\u00ed\u00f0\u00e1ttu Hrunamannaafr\u00e9ttar. \u00a0Fjallaklasinn \u00ed heild n\u00e6r yfir um 140 ferk\u00edl\u00f3metra. \u00d6r\u00e6fin \u00ed kringum fj\u00f6llin eru almennt \u00ed 600-700 metra h\u00e6\u00f0 yfir sj\u00e1varm\u00e1li \u00e1 me\u00f0an h\u00e6stu tindar Kerlingarfjalla r\u00edsa snarbrattir upp \u00ed yfir 1400 metra h\u00e6\u00f0. H\u00e6stur er Sn\u00e6kollur, 1488 metra h\u00e1r.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1290\" height=\"846\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_8523b.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3914\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_8523b.jpg 1290w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_8523b-300x197.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_8523b-1024x672.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_8523b-768x504.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1290px) 100vw, 1290px\" \/><figcaption><em>G\u00f6nguh\u00f3pur \u00e1 lei\u00f0 upp \u00e1 Fannborg, 1458 metra h\u00e1a. \u00dats\u00fdni\u00f0 ofan af henni er \u00f3vi\u00f0jafnanlegt. H\u00e9r er horft til su\u00f0vesturs. Tindarnir R\u00f6\u00f0ull til vinstri, H\u00f6ttur fyrir mi\u00f0ju og \u00d6gmundur til h\u00e6gri, 1357 metra h\u00e1r.<\/em><br \/>________________________________<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"has-medium-font-size\">F\u00e1g\u00e6tar jar\u00f0myndanir me\u00f0 h\u00e1tt verndargildi<\/p>\n\n\n\n<p>Sv\u00e6\u00f0i\u00f0 ber \u00f6ll einkenni megineldsst\u00f6\u00f0var og er \u00fear a\u00f0 finna n\u00e6stst\u00e6rsta l\u00edpar\u00edtsv\u00e6\u00f0i landsins. Allt l\u00edpar\u00edti\u00f0 hefur myndast vi\u00f0 gos \u00ed j\u00f6kli og sum fjallanna eru l\u00edpar\u00edtstapar, sem \u00feykja s\u00e9rlega f\u00e1g\u00e6t jar\u00f0myndun \u00e1 heimsv\u00edsu. L\u00edpar\u00edtmyndanirnar \u00ed fj\u00f6llunum eru heildst\u00e6\u00f0ar, \u00f3raska\u00f0ar og teljast hafa mj\u00f6g h\u00e1tt verndargildi s\u00f6kum \u00feess.&nbsp; Sv\u00e6\u00f0i\u00f0 skartar jafnframt einu fj\u00f6lbreyttasta hverasv\u00e6\u00f0i landsins \u00ed Efri og Ne\u00f0ri \u2013 Hverad\u00f6lum og Hverabotni. Hveravirkni er mikil og telst \u00fea\u00f0 f\u00e1g\u00e6tt a\u00f0 finna jafn mikinn \u00fe\u00e9ttleika af laugum, hverum og gufuaugum. Og einmitt vegna jar\u00f0hitans hafa orkufyrirt\u00e6kin rennt h\u00fdru auga til Kerlingarfjalla. Fj\u00f6llin voru hins vegar fri\u00f0l\u00fdst \u00e1ri\u00f0 2020 sem landslagsverndarsv\u00e6\u00f0i. Markmi\u00f0 fri\u00f0l\u00fdsingarinnar er a\u00f0 vernda jar\u00f0minjar, landslag, \u00f3bygg\u00f0ir og \u00e1s\u00fdnd sv\u00e6\u00f0isins, auk \u00feess sem henni er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 efla Kerlingarfj\u00f6ll sem \u00fativistarsv\u00e6\u00f0i og stu\u00f0la a\u00f0 g\u00f3\u00f0ri umgengni og b\u00e6ttu a\u00f0gengi a\u00f0 sv\u00e6\u00f0inu. Vonandi hefur \u00fear me\u00f0 veri\u00f0 komi\u00f0 endanlega \u00ed veg fyrir \u00fe\u00e1 gl\u00f3rulausu ey\u00f0ileggingu sem borholur, st\u00f6\u00f0varh\u00fas, affallsl\u00f3n og h\u00e1spennul\u00ednur myndu hafa \u00ed f\u00f6r me\u00f0 s\u00e9r fyrir \u00e1s\u00fdnd sv\u00e6\u00f0isins. N\u00e1tt\u00faruperla eins og Kerlingarfj\u00f6ll \u00e1 a\u00f0 vera \u00f3snert.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1290\" height=\"807\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7977.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3916\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7977.jpg 1290w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7977-300x188.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7977-1024x641.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7977-768x480.jpg 768w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7977-80x50.jpg 80w\" sizes=\"(max-width: 1290px) 100vw, 1290px\" \/><figcaption><em>\u00d3h\u00e6tt er a\u00f0 segja a\u00f0 Kerlingarfj\u00f6ll b\u00fai yfir einstaklega litr\u00edku landslagi.<\/em><br \/>_______________________________<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1290\" height=\"892\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_9229-1.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3919\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_9229-1.jpg 1290w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_9229-1-300x207.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_9229-1-1024x708.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_9229-1-768x531.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1290px) 100vw, 1290px\" \/><figcaption><em>Kynjamyndir \u00ed klettum. Einsamall g\u00f6nguma\u00f0ur r\u00f6ltir hj\u00e1.<\/em><br \/>_____________________<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<p class=\"has-medium-font-size\">Lifandi og \u00e1hugaver\u00f0 jar\u00f0fr\u00e6\u00f0i<\/p>\n\n\n\n<p>Kerlingarfj\u00f6ll eru myndu\u00f0 vi\u00f0 gos \u00ed megineldst\u00f6\u00f0 sem hefur veri\u00f0 virk \u00e1 s\u00ed\u00f0ari hluta \u00edsaldar. Fj\u00f6llin hafa veri\u00f0 aldursgreind og eru \u00feau \u00f6ll talin hafa myndast \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00eds\u00f6ld. Elsta bergi\u00f0 finnst \u00ed Draugafelli (336.000 \u00e1ra) og \u00fea\u00f0 yngsta \u00ed Fannborg (79.000 \u00e1ra). \u00c1 myndunart\u00edma fjallanna l\u00e1 j\u00f6kull yfir mi\u00f0h\u00e1lendinu. &nbsp;\u00c6tla m\u00e1 a\u00f0 yfirbor\u00f0 hans hafi veri\u00f0 a.m.k&nbsp;1600-1700 metrum yfir sj\u00e1varm\u00e1li \u00feegar Nor\u00f0urfj\u00f6llin myndu\u00f0ust. \u00deegar gos n\u00e1\u00f0u uppfyrir \u00edshelluna myndu\u00f0ust fj\u00f6ll me\u00f0 ne\u00f0ri hluta \u00far m\u00f3bergi en hraunhettu \u00ed kolli, e\u00f0a svokalla\u00f0ir Stapar. Me\u00f0al \u00feeirra \u00feekktustu eru H\u00f6ttur og Lo\u00f0mundur. \u00deeir er nokku\u00f0 \u00f3l\u00edkir fr\u00e1 flestum \u00f6\u00f0rum st\u00f6pum \u00e1 \u00cdslandi a\u00f0 \u00fev\u00ed leyti a\u00f0 vera \u00far s\u00faru bergi (l\u00edpar\u00edti). Hinir h\u00e1u og svipmiklu tindar Kerlingarfjalla eru a\u00f0 mestu \u00far \u00feeirri bergtegund. Hi\u00f0 mikla hverasv\u00e6\u00f0i \u00ed Kerlingarfj\u00f6llum er einmitt eitt einkenni megineldst\u00f6\u00f0va \u00e1 \u00cdslandi. Fyrir 30 \u00e1rum mun Kristj\u00e1n S\u00e6mundsson, jar\u00f0fr\u00e6\u00f0ingur, hafa fyrstur bent \u00e1 a\u00f0 greina m\u00e6tti brot tveggja askja innan fjallanna en um aldur \u00feeirra er ekki vita\u00f0. \u00d6skjur eru algengar \u00ed megineldst\u00f6\u00f0vum. Sl\u00edk fyrirb\u00e6ri eru oft talin myndast vi\u00f0 st\u00f3rfelld eldgos \u00fear sem kvikuh\u00f3lf megineldst\u00f6\u00f0var t\u00e6mist og landsig ver\u00f0ur \u00ed kj\u00f6lfari\u00f0. Ekki ber s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ingum saman um hvort Kerlingarfj\u00f6ll eru enn virk eldst\u00f6\u00f0. H\u00fan hefur ekki gosi\u00f0 fr\u00e1 lokum \u00edsaldar en telst enn vera \u00ed ja\u00f0ri hins virka gosbeltis. Fyrir jar\u00f0fr\u00e6\u00f0i\u00e1hugaf\u00f3lk eru Kerlingarfj\u00f6ll afar \u00e1hugaver\u00f0 \u00fev\u00ed \u00f3v\u00ed\u00f0a er jar\u00f0fr\u00e6\u00f0in jafn lifandi og \u00e1 \u00feessu sv\u00e6\u00f0i.<\/p>\n\n\n\n<p>________<br \/><em>Heimildir:<\/em><br \/>Umhverfisstofnun, <a href=\"http:\/\/www.ust.is\">www.ust.is<\/a> (Fri\u00f0l\u00fdst sv\u00e6\u00f0i\/Kerlingarfj\u00f6ll)<br \/>\u00c1rb\u00f3k F\u00cd 1996 \u2013 Ofan Hreppafjalla, \u00c1g\u00fast Gu\u00f0mundsson.<br \/>Vegv\u00edsir um jar\u00f0fr\u00e6\u00f0i \u00cdslands \u2013 Sn\u00e6bj\u00f6rn Gu\u00f0mundsson, 2015.<br \/>H\u00e1lendishandb\u00f3kin \u2013 P\u00e1ll \u00c1sgeir \u00c1sgeirsson, 2. \u00fatg\u00e1fa 2004.<\/p>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1290\" height=\"620\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/panorama-22.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3920\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/panorama-22.jpg 1290w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/panorama-22-300x144.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/panorama-22-1024x492.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/panorama-22-768x369.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1290px) 100vw, 1290px\" \/><figcaption><em>G\u00f6nguf\u00f3lk \u00e1 lei\u00f0 ofan af Sn\u00e6kolli. Fjalli\u00f0 framundan er Lo\u00f0mundur og Hofsj\u00f6kull \u00ed fjarska.<\/em><br \/>___________________<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1290\" height=\"587\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/Panorama2b.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3921\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/Panorama2b.jpg 1290w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/Panorama2b-300x137.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/Panorama2b-1024x466.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/Panorama2b-768x349.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1290px) 100vw, 1290px\" \/><figcaption><em>Horft til Kerlingarfjalla fr\u00e1 Kjalvegi. Lo\u00f0mundur til vinstri, Sn\u00e6kollur og Fannborgin til h\u00e6gri.<\/em><br \/>_______________________________<\/figcaption><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1290\" height=\"860\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7861.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3922\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7861.jpg 1290w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7861-300x200.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7861-1024x683.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_7861-768x512.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1290px) 100vw, 1290px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" width=\"1290\" height=\"747\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_9323.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3923\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_9323.jpg 1290w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_9323-300x174.jpg 300w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_9323-1024x593.jpg 1024w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_9323-768x445.jpg 768w\" sizes=\"(max-width: 1290px) 100vw, 1290px\" \/><\/figure>\n\n\n\n<figure class=\"wp-block-image size-full is-resized\"><img loading=\"lazy\" decoding=\"async\" src=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_8857.jpg\" alt=\"\" class=\"wp-image-3924\" width=\"640\" height=\"960\" srcset=\"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_8857.jpg 640w, https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_8857-200x300.jpg 200w\" sizes=\"(max-width: 640px) 100vw, 640px\" \/><figcaption><em>Hi\u00f0 st\u00f3rbrotna Kisuglj\u00fafur \u00ed austanver\u00f0um Kerlingarfj\u00f6llum.<\/em><br \/>________________________________<\/figcaption><\/figure>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00c1 Kili er eitthva\u00f0 sei\u00f0magn sem dregur mann \u00feanga\u00f0 aftur og aftur. Kjalvegur er kannski ekkert skemmtilegur yfirfer\u00f0ar, allavega \u00e1 k\u00f6flum, en b\u00fdr yfir \u00e1kve\u00f0num sjarma og andbl\u00e6 \u00f3bygg\u00f0anna sem alls ekki \u00e6tti a\u00f0 ey\u00f0ileggja me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gera hann &hellip; <a href=\"https:\/\/elg.is\/?p=3912\">Continued<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":2,"featured_media":3914,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"kt_blocks_editor_width":"","jetpack_post_was_ever_published":false,"_jetpack_newsletter_access":"","_jetpack_dont_email_post_to_subs":false,"_jetpack_newsletter_tier_id":0,"_jetpack_memberships_contains_paywalled_content":false,"_jetpack_memberships_contains_paid_content":false,"footnotes":"","jetpack_publicize_message":"","jetpack_publicize_feature_enabled":true,"jetpack_social_post_already_shared":true,"jetpack_social_options":{"image_generator_settings":{"template":"highway","enabled":false},"version":2}},"categories":[219],"tags":[275,277,281,22,125,273,272,274,279,278,276,280],"jetpack_publicize_connections":[],"jetpack_featured_media_url":"https:\/\/elg.is\/wp-content\/uploads\/2022\/02\/MG_8523b.jpg","jetpack_sharing_enabled":true,"jetpack_shortlink":"https:\/\/wp.me\/p9GOIz-116","jetpack_likes_enabled":true,"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3912"}],"collection":[{"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/users\/2"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcomments&post=3912"}],"version-history":[{"count":8,"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3912\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":3930,"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/posts\/3912\/revisions\/3930"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=\/wp\/v2\/media\/3914"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fmedia&parent=3912"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Fcategories&post=3912"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/elg.is\/index.php?rest_route=%2Fwp%2Fv2%2Ftags&post=3912"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}